miðvikudagur, september 03, 2003

Einhverjir (Margrét) virðast vera að misskilja líffræðifærsluna mína hérna fyrir neðan. Ég er ekki að meina að snípurinn ætti að vera inni í leggöngunum, þó það væri kannski ekkert verra svona þegar ég pæli í því. Ég hafði hugsað mér að hann væri eins og 1-3 sentimetrum neðar, (allt eftir formi skapanna, engar tvær konur eru eins) eða við hliðina á leggöngunum. Núverandi staðsetning gerir verulegan núning við snípinn aðeins mögulegan í vissum stellingum, en eðlilegra væri að hann tæki alltaf þátt í gamninu. Þá gætu konur auðveldlegar fengið fullnægingu við samfarir hvort sem þær örvast meira í leggöngum eða á sníp. Eða bæði.

En ætli ég láti nú þessum klámfærslum ekki lokið. Ég vonast til að hafa ekki sært blygðunarkennd neins, en mig langaði að koma þessari pælingu á framfæri og reyndar sýnist mér á viðbrögðum kynsystra minna ofl. að þetta sé alveg málstaður til að berjast fyrir. Og ef einhverjir ætla sér að ráða í mitt kynlíf út frá þessari færslu þá ætti ég rétt að minnast á að þessi pæling á við allar konur og ég hef yfir engu að kvarta í mínu kynlífi heldur er ákaflega sátt og sæl með mitt þakka ykkur kærlega fyrir ég er hætt.

Beygingarmynd dagsins...
...er að þessu sinni spurning: Hvort mynduð þið áætla að fleirtölumynd no."umbun" væri "umbunir" eða "umbanir" eða er þetta kannski bara eintöluorð?

Engin ummæli: