fimmtudagur, maí 27, 2004

Góða veislu gjöra skal...

...og þá verður allt að vera hreint. Ég var að ljúka hatrammri baráttu við gólfteppi í sjónvarpsholinu. Það er frekar ógeðslegt, það verður eiginlega að segjast, og safnar miklu magni af hárum og ryki. Undanfarnar 40 mínútur (eða tæplega það kannski) hef ég setið á hnjám mér og hamast á helvítis mottunni með ryksugustútnum. Ég tel sigurinn minn, en það útheimti blóð, svita og tár. Eins gott að það verði eitthvað varið í morgundaginn eftir hamaganginn undanfarna daga.

Svo á hann Önni minn afmæli í dag. Hann hefur því miður þurft að þola vanrækslu mína undanfarið þar sem ég hef verið afar sjálfhverf. Einhvern tíma verður bætt úr því.

Engin ummæli: