fimmtudagur, desember 05, 2002

Beygingarmyndir dagsins:

Hnélyfi
Binst

Próflestur gengur þolanlega. Ég borða merkilega lítið dag hvern...kannski mar grennist bara á þessu helvíti. Haaa, þarso martí´essu haaa.

Við Önundur höfum nú ekki hist í tæpa viku og ég þoli varla við. Nú veit ég ekki hvernig fyrirkomulag er hjá öðrum pörum, stundum er ég bara fegin einverunni en...já nei. Þetta er þó ekki óyfirstíganlegt, síðasta sumar sáumst við ekkert heilar 5 vikur vegna sjómennsku. Næsta sumar verður jafnvel enn verra vegna 5.bekkjarferðar minnar og enn lengri sjómennsku hans. Sumrin eru hreint ekki skemmtilegur tími. Við munum nú hittast eitthvað um helgina og að sjálfögðu næstu helgi á forsýningu Lord of the Rings: The two Towers, awwwwyyeeeaaaahhhh!
Nú svo koma bráðum blessuð jólin og ég fyrir löngu farin að hlakka til.

Engin ummæli: