mánudagur, desember 23, 2002

Jæja þá er litla systir búin að koma sér upp glæsilegri síðu sem skýtur minn ref fyrir rass. Meira hvað þessi systkini mín eru stórkostleg öll.

Í gær fór ég í bæinn, keypti síðustu jólagjöfina og fékk mér krullufranskar og bjór. Ekkert jólastress að drepa Unu nei-ó-nei.

Tilvitnun gærkvöldsins:
"Djöfull ætla ég að fokkin lúlla í nótt."
-Önni

Ég vil biðja alla sem finnst þeir eiga heimtingu á jólakorti frá mér afsökunar, ég sendi engin í ár. Jafnframt þakka ég fyrir þau sem ég fæ send, mér þykir ósköp vænt um það. Hver veit samt nema ég taki mig til og sendi áramótakort.

P.s. Muna að dansa kringum jólatréð í kvöld.

Engin ummæli: