fimmtudagur, janúar 16, 2003

Í vikunni byrjuðum við á kaflanum "The uses of cum" í latínu.

Ég lenti í örlitlum örðugleikum á sumardekkjunum í morgun. Ef ekki hefði verið fyrir kröftuga upphandleggi Önundar sæti ég eflaust enn í Garðabæjarskaflinum. Ég kaus þó að segja honum ekki að í upphafi ýtingsins, áður en hann byrjaði að moka, þá gleymdi ég að taka úr handbremsu sem skýrir líklegast tregðuna.

Hver veit nema ég skelli mér út á sleða um helgina.

Beygingarmynd dagsins:

Skipst

Engin ummæli: