miðvikudagur, febrúar 05, 2003

Einar Örn Gíslason, gjarnan kallaður Birgir af Magnúsum eftir MR-ví sigra, gerðist svo rausnarlegur að hlekkja mig. Slíkt legg ég ekki í vana minn að gera sökum óframfærni en kann honum þakkir fyrir og bæti honum með glöðu geði á hlekkjalistann minn, enda síða hans reglulegur viðkomustaður á intranetferðum mínum. Jafnframt ætla ég að brjóta odd af oflæti mínu og hlekkja til Grétars Más Amazeen. Sjáum svo hvað setur.

Engin ummæli: