mánudagur, febrúar 10, 2003

Slæmur dagur námslega séð. Jafnvel í anda við 4.bekk námslega séð. En mér sýnist ýmsir aðrir vera á svipaðri braut námslega séð. Svo það léttir á samviskunni námslega séð. Helgin var fín, nema ekki kannski námslega séð. Eyddi henni í orskum nullarfærnötum með kampavínsglas í hönd. Subbaði krem brúlei í peysuna mína. Mundi að eitt sinn var til Stöð 3. Skemmtihúsið hýsti Herranæturpartý þar sem magadans var framinn. Ari í Ögri gaf mér vatnsglas. Einhver fullyrti að þetta væri lífið. Sérdeilis ágæt helgi. Nema þá helst námslega séð.

Fræðist um vonir og væntingar sveitastúlkunnar Söru Lísu.

Engin ummæli: