mánudagur, febrúar 24, 2003

UNA SÉR BEST Á FJÖLLUM

Þar sem ég er hógvær stúlka að eðlisfari kann ég illa við slíkar yfirlýsingar. En fyrst Morgunblað allra landsmanna básúnaði þessu síðastliðin sunnudag sé ég ekki ástæðu til að fara í felur með þetta lengur. Mogginn fer nefnilega með rétt mál. Ég sé best allra á fjöllum. Ekki nokkur maður kemst með tærnar þar sem arnaraugu mín hafa hælana í fjallgönguskónum. Áhugasömum er þó ráðlagt að leggja ekki traust sitt á haukfrána sjón mína því svo bregðast krosstré sem önnur tré og þá sérstaklega á láglendi.

Engin ummæli: