miðvikudagur, apríl 30, 2003

Harry Potter

Ég hef verið að grúska í HP-fræðum á intranetinu. Niðurtalningin sýnir aðeins 29 daga í útgáfu 5.bókarinnar, The Order of the Phoenix. Vangaveltur um hvaða uppljóstranir verða í bókinn hafa gert mig mjög spennta og ég er farin að detta aftur í gamla Potter-gírinn sem ég var næstum búin að gleyma enda næstum tæp 2 löng ár síðan The Goblet of Fire kom út. Það er því ljóst að 21.maí mun færa mér langþráða og gamalkunna ánægju.

Beygingarmynd dagsins...
...birtist okkur Birni Flóka rétt í þessu alvgjörlega óviðbúnum: DAST

Engin ummæli: