þriðjudagur, júní 10, 2003

Fyrstu grillveislu sumarsins sótti ég í síðustu viku til að kveðja Sunnu og Kalla, sem eru nú farin til Vínar. Þau ákváðu greinilega að nýta aðstæður, verandi ung og flippuð, og stinga af til meginlandsins yfir sumarið. Fyrir það uppskera þau alla öfund mína og velgengnisóskir. Þetta er e-ð svipað því sem ma & pa gerðu í den og mig dreymdi alltaf um. Jæja ég get látið mér nægja að skoða gömlu myndaalbúmin þeirra. Ferðasögu Sunnu og Kalla er annars að finna hér

Beygingarmyndir dagsins...
...eru að þessu sinni ef.et. og ft. sama nafnorðs; nefs / nefja

Engin ummæli: