sunnudagur, júní 22, 2003

Laugardagur til lukku.

Ég vann til miðnættis. Fór að sofa. Vaknaði. Vann í 14 tíma. Kíkti í partý. Þar voru margir sem ég ekki þekki og nokkrir sem ég er málkunnug. Þaðan skutlaði ég Jóa í partý sem hann vissi ekki hvar var. Það var á Seltjarnarnesi. Ég var á leið í Mosfellsbæ. Við vorum næstum bensínlaus. Við stoppuðum á þremur beðnsínstöðvum áður en við gátum sett á bílinn. Við fundum húsið. Ég fór heim að sofa. Vaknaði 5 tímum seinna og fór í vinnuna þar sem gömul kona sagðist þrá mig eins og karlmaður.

Beygingarmynd dagsins: Ergelsisins

Engin ummæli: