fimmtudagur, júní 26, 2003

Harry Potter...

...er víst komin út en ég hef ekki útvegað mér eintak enn sökum vinnu og uppsölu. Ég hlakka til að kíkja í hana og er viss um að hún ætti ekki að valda mér vonbrigðum. Hinsvegar hef ég vissar áhyggjur af sjálfri mér, mér datt allt í einu í hug að kannski ég hafi tekið upp á því ómeðvitað og gegn eigin vilja að "þroskast upp úr"Harry Potter eða eitthvað. Það er svo langt síðan ég sökkti mér í hann síðast, kannski kann ég ekki lengur að njóta þess. Annars er þetta bara fluga sem ég fékk í höfuðið, get vonandi tekið af allan vafa sem fyrst. Á morgun jafnvel.

Beygingarmynd dagsins: Ég vildi að það væri ekki til neinn sjór í alheiminum

Engin ummæli: