þriðjudagur, júlí 08, 2003

Eitt sinn sem endranær afgreiddi ég ungan mann í bíóinu. Hann bað um bíóþrennu og ég ætlaði að gera honum grein fyrir að hann ætti val um gostegundir. Fágaðast orðfærið hefði verið:

"Hvað má bjóða þér að drekka?"

en þar sem ég er kæruleysislegur unglingur sagði ég þvoglumælt:

"Viltu kók?"

Nema hvað. Svipurinn sagði alveg nóg, ég bara veit að hann hélt ég hefði boðið honum kúk. Og já Steindór, hvað er þetta með mig og kúk.

Beygingarmynd dagsins; Benevideo

Engin ummæli: