þriðjudagur, september 30, 2003

Þeir sletta skyrinu sem eiga það

Í gærkvöldi rifust litlu systkini mín um hvort þeirra ætti meiri rétt á að borða í morgunmat hið litla magn af skyri sem til var. Rökræðurnar leiddu ekki að neinni niðurstöðu, en þegar ég fór á fætur í morgun hafði systir mín skrifað stórum stöfum á dolluna:

"ER BÚIN AÐ SLEIKJA SKYRIÐ, - BRYNHILDUR"

og þar með var vandinn leystur.

Beygingarmynd dagsins: Skýrslna

Engin ummæli: