þriðjudagur, nóvember 11, 2003

DV

Það er ofar mínum skilningi hvernig Mikaeli Torfasyni tókst að verða svona stórkostlega ofmetinn. Einhverra hluta vegna ákváðu fjölmiðlar að hampa honum sem ögrandi rithöfundi sem stingi á kýlum. Málið er hinsvegar að hann er ekkert að stinga á neinum kýlum, hann er bara að reyna að ganga fram af fólki. Einhvern veginn hefur svo farið fram hjá of mörgum að hann er ruslpenni, með ruslhugmyndafræði og getur af sér ruslbækur. DV hefur verið ruslblað ansi lengi og sér ekki fram á breytingu á því með þessari stórfurðulegu ráðningu. Ekki nema Illuga Jökulssyni takist að hrista Mikael af sér og skilja hann eftir í svaðinu þar sem hann á heima.

Engin ummæli: