sunnudagur, febrúar 15, 2004

Sjúklingur

Um helgina hef ég verið að rifja upp handtökin frá Víðinesi og jafnframt hita mig upp fyrir næsta sumar. Önundur er sjúklingur, þó hann sé reyndar allur að koma til. Eins gott að þetta ástand vari ekki of lengi, svo sambandið eigi afturkvæmt frá klínísku nótunum. Ætli ég kenni svo ekki hjúkrunarstörfunum um hversu litlu ég kom í verk námslega í vorfríinu.

Beygingarmynd dagsins:
Ég hef ekki verið nógu athugul gagnvart beygingarmyndum undanfarið. Í þetta skiptið ætla ég að taka ábendingu frá honum Atla ; sírísandi.

Engin ummæli: