þriðjudagur, mars 23, 2004

Sumarvinna

Ég ætlaði mér alltaf að reyna að komast aftur að á Víðinesi, en hafði enn ekki hringt vegna símafælni á háu stigi. Fyrrverandi yfirmaður minn leysti hinsvegar vandann í dag, hringdi í mig og sagði eina stöðu vera lausa næsta sumar, hvort ég ætlaði okkuð að gera eitthvað annað? Ég er mjög ánægð með að hún hafi boðið mér vinnuna. Mér finnst það sýna að ég hafi staðið mig vel síðasta sumar og þau vilji fá mig aftur. Sem er gott mál.

Engin ummæli: