miðvikudagur, apríl 14, 2004

Loksins, loksins...

...hefur 6.A valið sér dimissio-búninga. Það kostaði blóðug rifrildi og margra vikna hasar að komast að niðurstöðu, enda er fólkið í þessum bekk óhemju skoðanaglatt og enginn sem vill lúffa. Kolbrúnu latínukennara megum við þakka fyrir að ákvörðun var loks tekin, hún hætti kennslu í miðjum tíma og hótaði að yfirgefa ekki stofuna fyrr en málið væri útrætt. Nú þarf ég að fara í heimsókn til afa og sjá hvort hann getur hjálpað okkur við að klæða stakhanovismann holdi.

Beygingarmynd dagsins: Nánasa

Engin ummæli: