föstudagur, júlí 02, 2004

Hversdagur

Þessa vikuna stakk fjölskyldan öll af á landsmót, svo við Kisi erum ein heima. Ég var á næturvakt í nótt og er alveg uppgefin en ég nenni ekki að fara að sofa, og ég er með verki af hungri en ég nenni ekki fyrir mitt litla líf að fá mér að borða. Ég á 40 blaðsíður eftir í bókinni sem ég ætlaði að vera búin að klára en ég nenni ekki að lesa þær og mig langar til að vita hvort systir mín hafi komist í úrslit en ég nenni ekki að hringja til að komast að því. Ég veit alveg nákvæmlega um hvað ég vil blogga en ég nenni ekki að skrifa það. Ég er búin að sitja í 20 mínútur og stara út í loftið hugsandi ekkert.

Beygingarmynd dagsins: Tagls

Engin ummæli: