laugardagur, júlí 10, 2004

Axlabönd

Helsti ókosturinn við að hafa brjóst finnst mér vera sá að vegna þeirra gengur erfiðlega að nota axlabönd. Þetta tvennt fer einfaldlega ekki vel saman, sem er leitt því axlabönd eru stórskemmtileg að mínu mati. Karlmenn sem bera axlabönd hafa líka kynþokkafullt yfirbragð svo það er synd að axlabönd njóti ekki meiri vinsælda en raunin er.

Engin ummæli: