mánudagur, maí 30, 2005

KVK

Loksins hefur mér tekist að gangast við kynferði mínu. Nú hef ég klæðst pilsum/kjólum, ýmist hversdags eða spari, undanfarna 8 daga og fundist jafnvel þægilegra en hinar hefðbundnu buxur. Til að fullkomna þetta fékk ég mér svo göt í eyrun, í fyrsta sinn, í dag við mikla undrun afgreiðslustúlknanna í skartgripaversluninni. Normið er víst að stelpur séu að fá sér þetta allt frá nokkurra mánaða aldri (?!) til ca.6 ára aldurs. Kannski ég byrji að nota eldrauðan varalit líka.

Beygingarmynd dagsins: Hrossins

Engin ummæli: