miðvikudagur, maí 04, 2005

Typpi + Píka = Fullnæging

Það er alltaf jafnfyndið, en jafnframt grátbroslegt, að lesa og/eða sjá kynlífssenur sem lýsa afmeyjun stúlkna (sem virðist vera áhugamál margra) með eftirfarandi hætti:

"Fyrst þegar hann kom inn í hana var það svo hræðilega sárt að hún tók andköf, en eftir smá stund fór hún að finna hvað það var gott...þar til hún fékk raðfullnægingu."

Svona lagað hef ég víða séð, allt frá bloggsíðum unglingsstráka sem semja sveittar klámsögur, til skáldsögu eftir Haruki Murakami. Nú vil ég ekki fullyrða eða taka of stórt upp í mig (...) en mér þykir líklegt að tíðni þessarar kynlífsdraumsýnar sé hærri en tíðni raunverulegra tilvika. Gætu þeir kvenkynslesendur sem fengu fullnægingu við fyrstu snertingu typpis við leggöng vinsamlegast gefið sig fram í kommentakerfinu hér að neðan?

Engin ummæli: