sunnudagur, júní 08, 2003

Fjölskylduharmleikur...
...eða því sem næst. Kynbótameri fjölskyldunnar, Vissa, kastaði andvana Orrasyni tveimur mánuðum fyrir tímann. Þar með fauk stór þúsundkallabunki út um gluggann, enda Orrasæði ekki ódýrt. Ég sá litla greyið í gær, hann var óskaplega smár og fjarri því tilbúinn, með líknarbelginn vafinn um hálsinn. Fjárhagsskaðann má þó kannski bæta, því e-r Þjóðverji vill endilega leigja meri undan þessum eina Létti, til undaneldis. Vissa er einungis kandidat vegna þess að hún kastaði of snemma, en öllu verra er með útþanin júgrin á henni og móðurtilfinninguna sem hefur enga átt til að beinast í. Já svona er hrossaræktunin skemmtileg.

Beygingarmynd dagsins: Maðk**

**Vegna ábendingar frá Birni Erlingi Flóka Björnsyni

Engin ummæli: