þriðjudagur, október 28, 2003

Vegna þess að ég nota gleraugu þá fer stundum um mig þegar ég sé fólk lesa án gleraugna, sérstaklega í bíómyndum. Undirmeðvitund mín segir að þetta hljóti að fara illa með augun og þeim verði illt. Svo fletti ég alltaf öllum blöðum aftur á bak, vegna þess að ég er örvhent. Getur komið sér illa meðal mikilmenna sem líta niður á þá sem lesa afþreyingarsíðurnar. Svo held ég alltaf á spilum í öfuga átt vegna þessarar fötlunar. Kannast fleiri við þetta?

Engin ummæli: