fimmtudagur, desember 18, 2003

17.desember.

Þá höfum við Önni ruglað saman reitum í 2 ánægjuleg ár og ekki laust við að mér sé farið að þykja dálítið vænt um strákinn. Áfanganum fögnuðum við með því að borða fiskibollur og svo hlýddi ég honum yfir glósur um fordæmi. Á laugardaginn verður hinsvegar farið út á borða og í gleðskap.

Annars er prófunum lokið og þar með afar notalegu Íþökutímabili. Svo eignaðist ég nýtt, afar glæsilegt, kapítalískt rúm sem tekur góðan helming af herberginu mínu. Draumfarir mínar þar verða eflaust sínu skárri þeim sem ég hafði í gluggakistunni á Íþöku.

Svo hlakka ég rosalega mikið til jólanna.

Engin ummæli: