fimmtudagur, maí 13, 2004

Ómögulegt

Ég ætlaði í rúmið að sofna út frá lestri einhvers sem ekki er námsbók, en það vantar sængurföt og ég get ómögulega hugsað mér að setja á það. Íþaka er búin að eyðileggja á mér bakið. Frá og með þessari færslu ætla ég ekki að blogga meira um prófin.

Hroki og hleypidómar

Einhvers staðar las ég að nú eigi að Hollywoodvæða þessa bók með Brad Pitt í hlutverki Darcy. Kannski er ég ein um það, en ekki finnst mér Brad Pitt hafa tærnar þar sem Colin Firth hefur hælana hvað varðar kynþokka og sjarma. Svo var Darcy enginn fjárans Kani.

Engin ummæli: