laugardagur, maí 15, 2004

Siðleysi

Ofan á allt annað er nú verið að framleiða klámmyndir með sviðsettum nauðgunum í íröskum konum af bandarískum hermönnum. Eru svo einhverjir karlmenn að fróa sér yfir þessum myndum? Einhver hlýtur markaðurinn að vera fyrst fólk sér ástæðu til að framleiða það. Djöfulsins aumingjar. Svo er vinsælasta vídjóið á internetinu víst það sem sýnir bandaríska strákinn afhausaðan. Ekki hef ég hugsað mér að horfa á þetta myndband enda finnst mér það algjör óþarfi og fullkomið virðingarleysi við strákinn og fjölskyldu hans. Mér finnst alveg nóg að vita af þessu ógeði þó ég taki ekki sjálf þátt í því.

Engin ummæli: