Freyjugata 25b
Ég er að flytja að heiman. Frá og með næstu helgi verð ég til heimilis að Freyjugötu 25b ásamt Kára og Önundi. Þar munum við búa næsta hálfa árið eða svo, fram yfir áramót. Framhaldið er óráðið. Þetta hefur lengi verið í bígerð og er nú orðið að veruleika, eða verður það a.m.k. á föstudaginn þegar við fáum lyklana afhenta. Freyjugata 25b er lítið bárujárnshús sem stendur í porti aftan við hina hefðbundnu húsaröð við götuna. Þetta er lítið og sætt dúkkuhús, en þó vel rúmt fyrir okkur þrjú. Þar eru 2 svefnherbergi, 1 baðherbergi, stofa, eldhúskrókur og bíslag. Þarna mun því ekki væsa um okkur, þótt óvíst sé hvernig ástandið á innbúinu verður. Nú langar mig bara helst að fá mér hund í bíslagið.
Beygingarmynd dagsins: Bíslögin
Engin ummæli:
Skrifa ummæli