fimmtudagur, ágúst 04, 2005

Sökks

Fjölskyldan mín er öll farin til Svíþjóðar á Heimsmeistaramót íslenska hestsins. Mig hefur alltaf langað að fara til Svíþjóðar. Allt síðan ég fyrst bast Astrid Lindgren tryggðarböndum. Sú var tíðin að mig langaði frekar að búa í Svíþjóð en á Íslandi. (Helst á Saltkráku, eða einhverri annarri eyju í Skerjagarðinum, en Smálöndin hefðu líka verið mjög ásættanleg og Ólátagarður náttúrulega útópía.) Þetta er í annað skiptið sem farin er fjölskylduferð til útlanda, hin var þegar ég var 11 ára. Ég gat ekki farið með í ferðina vegna vinnunnar. Ðis sökks.

Beygingarmynd dagsins: Bast

Engin ummæli: