fimmtudagur, september 01, 2005

Deyr fé?

Staðan á bankareikningnum mínum hefur verið 502 þúsund í allan dag eftir að launin voru lögð inn. Ég veit ekki hvort það er óvenjulegt á þessum aldri eða algengt, en ég hef aldrei átt svona háa upphæð í einu áður. Hálf milljón. Ég ætla að njóta augnabliksins, því á morgun verður 70 þúsund króna kreditkortareikningur skuldfærður. Svo þetta er skammvinn sæla. En hver veit, kannski mun ég einhvern tíma eignast hálfa milljón aftur...og kannski...kannski kemst ég yfir milljón króna markið einhvern tíma á ævinni.

Engin ummæli: