föstudagur, desember 02, 2005

Sjö hlutir

Nú hef ég verið tví"kitluð"; annars vegar af Margréti og hinsvegar af Ómari. Hver er það eiginlega sem finnur upp á öllum þessum keðjufærslum? Fyrst nennti ég ekki að taka þátt í þessu, en nú er annað uppi á teningnum, þar sem próflestur er byrjaður og ég til í allt. Þetta kitl hefur verið með ólíku sniði á milli bloggsíða, svo mitt tilfelli verður einhvers konar samsuða af þessu.

Ég get:
-Lifað mig mjög mikið inn í bækur og bíómyndir
-Gert kækinn minn svo ákaft að ég fæ illt í hendurnar
-Tekið hnébeygju með allavega 35kg (líklega hærra, ég á eftir að prófa)
-Notið einverunnar
-Orðið svo glöð og hamingjusöm að ég tárast
-Orðið svo reið að ég urra og sparka í hluti
-Verið óþarflega bersögul

Ég get ekki:
-Stungið mér út í sundlaug
-Farið í handahlaup
-Fléttað á mér hárið
-Byrjað úti í snúsnú
-Farið í beinan kollhnís (sérstaklega ekki uppi á kistu)
-Umborið fólk sem kann ekki að rökræða
-Hlegið kurteisislega að einhverju sem mér þykir ekki fyndið

Ég segi oft:
-Góða nótt (ég segi alltaf góða nótt við alla sem ég kveð á kvöldin)
-Jess kex
-Hvað eigum við að borða?
-Mastercard-þjónustuver
-Kúkur
-Ég elska þig
-Ég ætla að opna/loka glugganum (ég er með Siggu Jó syndromið)

Karlmenn heilla mig með
-Sjálfstrausti og öryggri framkomu
-Skynsemi og gáfum
-Kímnigáfu og gleði
-Einlægni og hreinskilni
-Virðingu
-Skeggbroddum og loðinni bringu
-Hraustlegum líkama. Þá sérstaklega breiðum öxlum og sterklegum handleggjum og fótleggjum. Og líkamslykt.

(Ég veit að þetta eru tæknilega séð 15 atriði fremur en 7, en ég átti erfitt með að þrengja þetta niður. Það er margt sem heillar við karlmenn, en yfirleitt þurfa þeir að búa yfir meirihluta þessara eiginleika til að vera raunverulega heillandi, einn dugir ekki til.)

Frægir karlmenn sem mér finnst sexý:
-Colin Firth
-George Clooney
-Clive Owen
-Benicio Del Toro
-Ashton Kutcher
...ég man ekki eftir neinum fleiri. Ég á auðveldara með að muna eftir frægum konum sem mér finnst fallegar. Hvað er málið með það?

Ég held lítið upp á
-Höfuðverkjaköst
-Köld baðherbergi og gólf
-Þungt loft
-Munnangur
-Gleraugun mín
-Magann
-Andvökunætur


Ég held mikið upp á:
-Fartölvuna mína
-Internetið
-Húsið sem ég bý í/húsið í hverju ég bý
-Æpoddarann
-Ljósmyndir
-Kjólana mína, sem ég get því miður sjaldan klæðst
-Mjúka sófa með hlýju teppi

Engin ummæli: