laugardagur, október 21, 2006

Er hommi um borð herra forseti?

Teljarinn minn er sem áður fyrr uppspretta mikillar gleði. Um daginn kom einhver inn á síðuna mína í gegnum leitarorðin Er hommi um borð herra forseti.


Hringjarinn í Hallgrímskirkju var manna hressastur í morgun. Frá 10:25 til 10:45 hringdu klukkurnar svo til látlaust hin ýmsu stef. Kannski var þetta einhver tilraunastarfsemi. Ég vona samt að þeir skipti ekki út Ísland ögrum skorið.

Annars mæli ég með þessari vefsíðu, svona á meðan beygingarmynd dagsins lætur á sér standa á þessari síðu.

Engin ummæli: