þriðjudagur, janúar 30, 2007

Kredit

Þess má geta að Haloscan skilaði sér aftur inn á síðuna mína blessaða fyrir tilstilli Davíðs Halldór Kristjánssonar, sem var svo almennilegur að leggjast aðeins yfir html-ið mitt og breyta og bæta.
Það er lúxus að hafa aðgang að vel tölvulæsum mönnum þegar maður strandar sjálfur á tækninni. Ég tel mig vera temmilega færa sjálfa í tölvumálum, en þar sem mín kunnátta endar tekur annarra við og auk Davíðs hafa Konráð Jónsson, Frank Cassata og Jón Eðvald Vignisson allir verið liðlegir við mig í gegnum tíðina. Kann ég þeim þakkir fyrir.

Engin ummæli: