sunnudagur, febrúar 24, 2008

Væmin.is

Jæja stutt hérna fyrir svefninn. Ég útskrifaðist í dag og meira um það síðar, en af því tilefni fékk ég lager af fólki hérna í heimsókn til mín og ég vildi bara koma því á framfæri svona í morgunsárið/næturhúminu hvað þetta er allt frábært fólk sem ég þekki og hvað mér þykir vænt um þau öll. Æjæjæj þið eruð öll svo skemmtileg og sniðug og mér þykir svo ótrúlega vænt um ykkur öll með tölu sem voruð hérna í kvöld, og suma sem vantaði líka reyndar, öll, öll, öll. Og svo náttúrulega á ég besta manninn af þeim öllum sem er svo óendanlega góður við mig, en það er önnur saga. Lov jú gæs. Og þegar ég vakna í fyrramálið verða alls konar flöskur og ógeð út um allt hús innandyra og utan en þær eru einungis til marks um það einvalalið sem stendur mér næst.

P.s. Önni er að gera grín að mér hérna fyrir að hafa gert eins fyrirsagnir síðan ég var með bláa bloggið. (Ekki klámblogg heldur það sem var með bláu templeiti). Og fyrir ykkur stelpur sem eruð kannski forvitnar að vita hvað var í litla pakkanum sem var opnaður eftir partýlok, þá var það voðalega fallegt hálsmen. Thank you very much goodnight.

Engin ummæli: