Komi þeir sem koma vilja, veri þeir sem vera vilja, fari þeir sem fara vilja, mér og mínum að meinalausu.
föstudagur, nóvember 08, 2002
miðvikudagur, nóvember 06, 2002
Djöfull, ég dormaði inni á Framtíðarskrifstofu til kl.sjö og gleymdi svo símanum mínum. Scrambs.
Þessa dagana hefur pabbi ákveðið að undirstrika James Bond útlit sitt með ötulli skeggsöfnun. (Brandarinn "Bóndi, -Jónas Bóndi verður greinilega aldrei þreyttur) Auk þess hlustar hann á gamla unglingarokkið sitt og lemur í bílstýrið. Á meðan mætir amma mín daglega niður á Austurvöll ásamt fleiri mótmælendum og berst fyrir ástríðu sinni, íslenskri náttúru. Litli bróðir minn er að ná sér í fyrstu kærustuna og sá eldri baslar við hönnun gay.is. Systir mín er (næstum) kosin ungfrú 8.bekkur á date-ballinu og mamma....ja...hún lætur sig iðulega hverfa fyrirvaralaust austur fyrir fjall til að gelda trippi.
Fjölskylda mín er merkileg, en hvað er ég að gera?

þriðjudagur, nóvember 05, 2002
Sjómaðurinn, víkingurinn, karlmennið, sprelligosinn og sjarmatröllið Bragi Páll Sigurðarsonþjáningarbróðir minn úr grunnskóla, kærastaplöggari og goðsögn hefur hafið blogg. Fylgist með framgangi mála hjá Lamba
Orðið á götunni er að fyrrverandi forseti vor Jens Þórðarson nenni alls ekki að blogga eða hvað?
Allir mega gjarnan fyllast ofsakæti og fagna námsárangri Önna í lögfræðinni. Hipp hipp; HÚRRA.
Orð dagsins:
Molakörin

mánudagur, nóvember 04, 2002
Smásögur úr hversdagslífinu:
Þegar ég var lítil átti ég oft í miklu sálarstríð fyrir háttinn. Ég gat ekki ákveðið hvort ég átti að hafa hurðina lokaða ef kvikna skyldi í eða opna ef það kæmi jarðskjálfti. Ákvað á endanum að loka henni aðra hverja nótt.
Á gangi eftir Tjarnargötunni áðan sá ég konu koma út úr húsi með byssu í hönd og miða á félaga sinn. Vitaskuld var þetta platbyssa, en það fyrsta sem mér kom í hug var að hér yrði ég vitni að skotárás. Varð dulítið spennt.
Þegar ég var í 10.bekk stóð ég ásamt hópi grunnskólakrakka yfir deyjandi manni sem lá á götunni. Hann hafði skyndilega fengið hjartaáfall og hrunið niður, svo byrjaði hann að blána og stífna upp. Sjúkrabíllinn var lengi á leiðinni og á meðan ég fylgdist með þessu fékk ég hláturskast. Á sama tíma skældi bekkjarsystir mín. Viðbrögð fólks við áreiti eru ólík, en hlátur minn stafaði ekki af illsku heldur panikki.
Einu sinni hnerraði eldri bróðir minn beint framan í mig.
Mér skilst á Frank að hann muni fara með hlutverk Teletubbie í Áramótaskaupinu. Sumir fá bara allt upp í hendurnar haaa. Spurningin er hvort hann fær að vera Tinkívinkí, Nana, Tipsí eða Pó.
Í Mosfellsstrætó um daginn hitti ég hóp af fólki með Downs-heilkenni sem tóku að yfirheyra mig miskunnarlaust. Svo þegar ég sagðist eiga kasettu með Björgvini Halldórssyni lá við að þau klöppuðu af fögnuði. Í framhaldinu var ég frædd ítarlega um kosti Bjögga.
Mér leiðist.

föstudagur, nóvember 01, 2002
Ræðukeppnin Sólbjartur er orðin að föstum lið eins og venjulega. Ég hef nú séð þær tvær keppnir sem búnar eru og haft gaman af. Þó er dómarahléð í dag sérstaklega minnisstætt (enda ekki langt um liðið) og hlaut titilinn "súrasta dómarahlé í sögu Sólbjarts." Enginn áhorfanda stóð upp til að pissa eða reykja eins og venjulegt er heldur sátu allir sem fastast og hlustuðu á Odd Ástráðs fundarstjóra gera ítarlega grein fyrir fjölskyldumynstri sínu. Fleiri höfðu (misátakanlegar) reynslusögur um fjölskyldu sína að segja, en að lokum leystist samkundan upp í keðjusöng lagsins Sá ég spóa. Þess má geta að allt þetta var tekið upp.
Tilvitnun dagsins:
"Lalala, lalalalalla, lalala, lalalalalla"
-Kylie Minoge

Sinfóníutónleikar eru stórkostlegur þynnkubani. MR-ingar fengu frí í nokkrum tímum í dag í boði Sinfoníuhljómsveitar Íslands. Á meðan tónleikarnir stóðu yfir leið mér yndislega vel, laus við allan höfuðverk. Hann er nú kominn aftur, en þó vægari en áður.
Sumir sáu sér ekki fært að mæta í boðið, þótti víst meira aðkallandi að fara á kaffihús eða McDonalds. Auðvitað er hverjum frjálst að forðast tilbreytingu, en Biggi líkti þessu við að hunsa afmælisboð. Nokkrir þeirra sem mættu fussuðu af leiðindum eftir á, Biggi líkti því við að mæta í afmælið og kvarta yfir hvað kökurnar eru ógeðslega vondar.
Úrslit keppninnar um fyndnasta mann Ísland voru í gær. Birgir beið lægri hlut fyrir gömlum Dalvíking sem kallar sig Fílinn. Sá var sniðugur á köflum, en notaðist nokkuð við gamla brandara af götunni sem ég man eftir úr barnaskóla. Að mínu mati var Biggi eini keppandinn sem átti enga lágpunkta, en ég er auðvitað hlutlæg.
Öhhh, ég vil rúm.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)