Sýnir færslur með efnisorðinu Bókhlaðan. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Bókhlaðan. Sýna allar færslur

mánudagur, desember 06, 2004

Hvar er Björgólfur núna?

Ég neyddist til að kaupa mér sjálf græna eyrnatappa, á heilar 50 krónur.

Beygingarmynd dagsins: Týndra

fimmtudagur, september 30, 2004

föstudagur, september 24, 2004

Haust

Buxurnar mínar voru svo blautar þegar ég kom inn á bókhlöðuna í morgun að ég þurfti að fara úr þeim inni á klósetti og þurrka þær í handþurrkunni. Eftir það var mjög hlýtt og notalegt að fara í þær aftur. Mig langar bara til að liggja undir sæng og lesa skemmtilega bók og kúra og kela. Afhverju getur ekki allt lífið verið þannig?

miðvikudagur, mars 31, 2004

Bókhlöðunördinn

Hann situr beint á móti mér núna. Hann er alveg eins og teiknimyndapersóna. Ég elska hann. Mig langar að taka hann með mér heim og gefa honum flóaða mjólk.

mánudagur, október 27, 2003

Á bókhlöðunni mæti ég iðulega ungum háskólapilti sem ég gruna fastlega um að vera blábjáni. Hann er hávaxinn, ljóshærður og án efa efni í karlfyrirsætu, enda er honum einkar lagið að setja stút á munninn eins og hann fari með orðið "kjöt" í hljóði. Mögulegt er að ég sé gegnumsýrð af fordómum gagnvart fallegu fólki, en ég flissa alltaf í huganum þegar ég sé hann. En þó ég telji líklegt að hann sé sauður er þó rétt að ítreka að hann er örugglega ekki vondur maður.

miðvikudagur, september 24, 2003

Támyrja
Ég er á Bókhlöðunni en get tæplega lært sökum támyrju mannsins er á móti mér situr.

Beygingarmynd dagsins: Herrum

miðvikudagur, apríl 16, 2003

"Krókódíll, krókódíll; hvernig kemst ég yfir gullbrúna?"
"Eins og skopparakringla!!"
Úti við bergmálar barnahlátur,-hróð og köll. Mig langar að safna liði og fara út í leiki. Ég er mótfallin aldurstakmörkunum á slíkar skemmtanir, ég er ekki of gömul til að hafa gaman af brennó og einakrónu á blíðviðrisdögum. Kannski ég beiti nýtilkomnu valdi mínu og skipuleggi Leikjaselsferð 2003. Þeir sem hafa áhuga láti mig vita.

Annars virðist ég hafa kallað bölvun yfir Önundarson fjölskylduna í Garðabænum. Þar hefur geisað sótthiti og flæði óæskilegra líkamsvessa. Allt þetta má rekja til slappleika míns um helgina. Ég greip því á það ráð að stinga þaðan af og hanga með stúlkunum í sundi og við eldamennsku. Það var ljúft. Bókhlaðan er nú full af ókunnugu fólki sem þykist ætla að bjarga því sem bjargað verður í páskafríinu. Ég kann betur við mig þar í hópi fárra fastakúnna, nú drukkna gömlu góðu andlitin í asanum frá öllum hinum sem stela frá mér bestu sætunum.

Beygingarmynd dagsins: Ops

þriðjudagur, október 22, 2002

Stundum anga klósett bókhlöðunnar af nýbakaðri, ilmandi súkkulaðiköku. Óvanalegt þykir að klósettferðir espi upp hungrið, en bókhlaðan er heldur engin hefðbundinn staður.

Nú hef ég skafið samansafnaða húðfitu ótalmargra námsmanna af lyklaborðinu og áttað mig á að ég hef ekkert fleira að segja.